Keyrði yfir staur og bíllinn stórskemmdist

Á Vest­ur­lands­vegi hafa mynd­ast djúpar rák­ir sem skapa mikla hættu.
Á Vest­ur­lands­vegi hafa mynd­ast djúpar rák­ir sem skapa mikla hættu. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ástand vega á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur versnað mikið að und­an­förnu og víða hafa mynd­ast djúp­ar hol­ur í göt­um. Mbl.is hef­ur borist fjöldi ábend­inga um hol­ur víða um borg­ina, sem hafa oft á tíðum valdið tjóni á bíl­um.

Við ósk­um hér með eft­ir fleiri ábend­ing­um á net­fangið net­frett@mbl.is

Jón Gíslason lenti í þeirri óskemmtileð reynslu þann 15. mars sl. að keyra yfir ljósastaur á Reykjanesbraut fyrir ofan Innri Njarðvík. Staurinn hafði fallið yfir götuna og lá þvert á hægri akrein. Hafði hann slegið út rafmagninu af öllum ljósastaurunum við þessi mislægu gatnamót.

„Það er skemmst frá því að segja að ég var á hundrað kílómetra hraða þegar ég kom að staurnum og það skipti engum togum að ég keyrði yfir staurinn,“ segir Jón, en við höggið eyðilögðust allar felgur og tvö dekk auk þess sem stýrisgangur laskaðist.

Tjónið á bíl Jóns nemur 100.000 krónum, en hann hefur enn ekki fengið svör um það frá Sjóvá hvort hann fái það bætt. Að hans sögn bíður tryggingafélagið eftir umsögn Vegagerðarinnar um hvort þeir telji sig bótaskylda.

„Mér er það með öllu óskiljanlegt hvernig Vegagerðin getur eilíflega skotið sér undan ábyrgð. Ég hélt að þeir væru ábyrgir fyrir ástandi vega og ljósastaura, hvort sem þeir vita af einhverri holu eða föllnum ljósastaur eða ekki. Þeir eiga að vita um ástand vega og fylgihluta, þeir eru jú með eftirlitsmenn um allt land,“ segir Jón.

Hola í vegi á Sæ­braut.
Hola í vegi á Sæ­braut. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Magnús Bjarki Stefánsson varð fyrir því óhappi að sprengja og eyðileggja tvö dekk hægra megin á bifreið sinni föstudaginn 13. mars sl. á gatnamótum Vatnagarða og Sægarða.

Magnús segist hafa staðið í stórræðum fram á dag við að koma nýjum dekkjum undir bílinn, en hann lét svo Reykjavíkurborg vita um klukkan 15:45. Var honum tjáð að ekkert yrði gert þennan daginn þar sem allir væru farnir heim. Því næst fór hann í Sjóvá og gaf skýrslu.

Þegar hann var síðan á ferð um sömu gatnamót síðar um daginn sá hann konu sem hafði lent í því nákvæmlega sama.

Loks fékk hann símtal frá Sjóvá og var tjáð að borgin væri ekki bótaskyld þar sem þeim var ekki tikynnt um holuna fyrr en klukkan 14:30 og hann hafði keyrt ofan í hana klukkan 11:30. Hringdi hann þá í borgina og fékk þar sömu upplýsingar.

„Ég er orðlaus yfir þessu viðhorfi borgaryfirvalda. Það er á þeirra ábyrgð að göturnar séu í lagi, punktur,“ segir Magnús.

Marteinn Jones lenti í þessari holu við Reykjavíkurveg, en við …
Marteinn Jones lenti í þessari holu við Reykjavíkurveg, en við það skemmdist stuðarinn á bílnum, stuðaraljósið, pústið og ein framfelga. Hann fær tjónið ekki bætt. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Ábend­ing­um um hol­ur og tjón af þeirra völd­um hef­ur rignt inn til sveit­ar­fé­lag­anna, Vega­gerðar­inn­ar og trygg­ing­arfé­laga að und­an­förnu. Skipta þess­ar til­kynn­ing­ar orðið hundruðum og eru frá ára­mót­um orðnar langt­um fleiri en á öllu síðasta ári.

Vega­gerðin er í þess­um til­fell­um veg­hald­ari og hef­ur tjáð fólki að ekki hafi verið búið að til­kynna um hol­urn­ar áður en tjónið varð, sem firri hana ábyrgð. Veg­hald­ar­ar geta í viss­um til­fell­um verið bóta­skyld­ir en sönn­un­ar­byrðin er sterk.

Þetta dekk skemmdist í holu sem var á brúnni þar …
Þetta dekk skemmdist í holu sem var á brúnni þar sem Snorrabraut mætir Bústaðavegi. ljósmynd/Elva Mjöll Þórsdóttir
Búið er að bráðabirgðafylla holurnar þar sem dekkið skemmdist, en …
Búið er að bráðabirgðafylla holurnar þar sem dekkið skemmdist, en nokkrir vegfarendur höfðu þar lent í svipuðum atvikum. ljósmynd/Elva Mjöll Þórsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert