Innbrot í bílaleigu

Lögreglustöðin Hverfisgötu
Lögreglustöðin Hverfisgötu mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um innbrot í bílaleigu í Árbæ á þriðja tímanum í nótt.

Tilkynningin barst klukkan 2:36 en klukkan 2:44 var búið að handtaka einn grunaðan um innbrotið. Hann gistir nú fangageymslur á Hverfisgötu og verður yfirheyrður síðar í dag. Talið að tveir aðrir tengist málinu en þeir ekki fundist en mennirnir sáust yfirgefa bílaleiguna með að minnsta kosti tvö vélhjól. 

Einn var stöðvaður af lögreglu í nótt grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert