Það er vaxandi norðvestanátt á Norður- og Austurlandi með morgninum, 10-20 m/s uppúr hádegi með snjókomu eða éljum. Norðan 3-10 á S- og V-landi og léttskýjað. Dregur úr vindi í nótt. Norðan 5-10 um hádegi á morgun og léttskýjað, en dálítil él N-lands. Frost 2 til 8 stig, en sums staðar harðara frost að næturlagi.
Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum en annars er nokkur hálka eða hálkublettir á Suðurlandi, einkum útvegum og sumstaðar er jafnvel þæfingur.
Á Vesturlandi er víða hálka eða hálkublettir á vegum en snjóþekja á Bröttubrekku og Laxárdalsheiði. Hálka er á Holtavörðuheiði.
Hálka eða snjóþekja er á fjallvegum á Vestfjörðum en á láglendi eru hálkublettir.
Það er víðast hvar hálka eða snjóþekja á Norðurlandi og éljagangur nokkuð víða, einkum á Norðausturlandi. Þungfært er um Tjörnes.
Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja á vegum. Þæfingsfærð er á Vopnafjarðarheiði. Á Fjarðarheiði og í Fagradal er snjóþekja en hálka á Oddsskarði. Hálka eða hálkublettir með suðausturströndinni.