Bændur fá ekki greitt fyrir afurðir sínar

Bændasamtök Íslands fagna því að undanþágunefnd BHM hafi síðastliðinn föstudag samþykkt að veita undanþágur frá verkfalli dýralækna, svo að alifuglaslátrun gæti farið fram. Samtökin líta svo á að með því hafi verið brugðist við þeim alvarlega dýravelferðarvanda sem kominn var upp í alifuglaræktinni, þar sem slátrun verður að fara fram jafnt og þétt. Sé það ekki gert verður á skömmum tíma of þröngt í eldishúsum fuglanna, sjúkdómahætta eykst verulega og almennri velferð dýranna er hætta búin.  

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.

Bændasamtökin benda á að sambærileg staða komi upp í svínarækt strax í þessari viku, en engar undanþágur hafa verið veittar í þeirri grein. Frá upphafi verkfalls hafa sláturleyfishafar sótt um undanþágur á grundvelli dýravelferðar, eins og skýrt kemur fram i umsóknum sem liggja fyrir hjá Matvælastofnun.

„En þó svo að undanþága sé veitt fyrir slátrun má ekki að svo stöddu setja vörurnar á markað heldur eingöngu í frystingu. Slátrun án markaðssetningar þýðir að bændur fá ekki greitt fyrir afurðir sínar. Slíkt leiðir fljótt til mikils vanda í rekstri búanna og veldur þeim verulegu og óafturkræfu tjóni, hvern einasta dag sem verkfallið stendur.

Bændasamtökin leggja því þunga áherslu á að deiluaðilar gangi til samninga sem allra fyrst. Vandinn vex með hverjum deginum sem verkfallið stendur og getur valdið óbætanlegu tjóni fyrir íslenskan landbúnað ef það dregst á langinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert