Breyta listahátíð vegna verkfalla

Náist ekki að semja stefnir í allsherjarverkföll hér á landi …
Náist ekki að semja stefnir í allsherjarverkföll hér á landi þann 6. júní. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Vegna víðtækra verkfallsaðgerða og yfirvofandi allsherjarverkfalls verða breytingar gerðar á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík sem nú stendur yfir, segir í fréttatilkynningu.

Fyrirlestur Guerrilla Girls í Bíó Paradís 6. júní kl. 14 flyst til 4. júní kl. 17. Miðaeigendur sem óska eftir endurgreiðslu miða sinna eru beðnir að snúa sér til miðasölu Listahátíðar í Reykjavík.

Mannsröddin í flutningi Juliu Migenes í Eldborg 7. júní fellur niður. Miðar verða endurgreiddir í miðasölu Hörpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert