Fresta verkföllum um fimm sólarhringa

Frá Karphúsinu.
Frá Karphúsinu. mbl.is/Eggert

Forsvarsmenn samninganefnda VR, LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og Samtaka atvinnulífsins hafa náð samkomulagi um frestun verkfallsaðgerða, sem áttu að hefjast þann 28. maí næstkomandi, um fimm sólarhringa.

Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir ennfremur að ekki verði upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna aðila fyrr en gengið hafi verið frá drögum að samningi sem lagðar verði fyrir samninganefndir félaganna.

Stefnt sé að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi.

Staða Starfsgreinasambandsins er óbreytt að sögn Björns Snæbjörnssonar, formanns SGS, en félagið hefur boðað verkfall sem hefst að öllu óbreyttu aðfaranótt fimmtudags. Björn segir í samtali við mbl.is að engar viðræður hafi verið í gangi en hann á von á að fundað verði áður en verkfallið hefst. 

Skipulag verkfallsaðgerða að teknu tilliti til frestunar um fimm sólarhringa, að því er fram kemur á vef ASÍ, verður sem hér segir:

2. og 3. júní Hópbifreiðafyrirtæki 
frá kl. 00:00 2. júní til kl. 24:00 3. júní 

4. og 5. júní Hótel, gististaðir og baðstaðir 
frá kl. 00:00 4. júní til kl. 24:00 5. júní

5. og 6. júní Flugafgreiðsla 
frá kl. 00:00 5. júní til kl. 24:00 6. júní

7. og 8. júní Skipafélög og matvöruverslanir 
frá kl. 00:00 7. júní til kl. 24:00 8. júní

9. og 10. júní Olíufélög 
frá kl. 00:00 9. júní til kl. 24:00 10. júní

Ótímabundið allsherjarverkfall hefst kl. 00:00 þann 11. júní 2015 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert