Grunur um kynferðisbrot á hóteli

Lögreglubílar á vettvangi í hádeginu.
Lögreglubílar á vettvangi í hádeginu. mbl.is/Júlíus

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning fyrir hádegi í dag um að kynferðisbrot hefði verið framið á hótelherbergi í miðborg Reykjavíkur í nótt.

Lögreglumenn fóru á vettvang og er nú unnið að því að yfirheyra vitni, sem voru færð á lögreglustöð til skýrslutöku.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni barst tilkynning um að konu hefði verið nauðgað á hótelinu. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið.

Rannsókn málsins stendur yfir en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert