Hlaupa 244 kílómetra fyrir langveik börn

Hægt er að heita á hlauparana meðan á hlaupinu stendur. …
Hægt er að heita á hlauparana meðan á hlaupinu stendur. Allt sem safnast fer til Umhyggju.

Iðkendur og þjálfarar hjá Sparta heilsurækt og Training for Warriors Reykjavík (TFW-Reykjavik) ætla föstudaginn 29. maí að hlaupa frá Nýbýlavegi 6, þar sem Sparta heilsurækt er staðsett, til Blönduóss og safna í leiðinni áheitum fyrir Umhyggju, styrktarfélag langveikra barna.

Þeir Fannar Karvel Steindórsson og Jóhann Emil Elíasson halda utan um skipulag hlaupsins. Þeir eru jafnframt framkvæmdastjóri og rekstrarstjóri Spörtu, auk þess að þjálfa á stöðinni. Að sögn Fannars er áætlað að hlaupið taki á bilinu 26-30 klukkustundir, eftir því hvernig hópnum gangi að hlaupa.

Hlaupararnir verða 25 talsins en þeir munu skiptast á að hlaupa þannig að einn til þrír hlauparar hlaupa í einu. „Hver þeirra hleypur 3-5 kílómetra í einu áður en skipt er um hlaupara. Þeir sem hvíla sig geta þá lagt sig í rútunni sem ekur með okkur,“ útskýrir Fannar. Auk hlauparanna kemur einn bílstjóri með og tveir aðrir sem verða hópnum innan handar og sjá um að miðla upplýsingum á samfélagsmiðla.

Nokkuð passleg vegalengd

Leiðin sem hlaupin verður er um 244 kílómetrar að lengd. Aðspurður hvers vegna Blönduós hafi orðið fyrir valinu sem áfangastaður segir Fannar: „Í fyrstu stóð til að annar hópur frá Akureyri myndi hitta okkur á miðri leið, rétt hjá Blönduósi en hann varð að hætta við. Við ákváðum þá bara að lengja leiðina og fara sjálf. Auk þess eru margir í stöðinni okkar að norðan, þar á meðal konan mín. Loks þótti okkur þetta passleg vegalengd,“ segir hann og bætir við að hópurinn muni fara krókaleiðir eftir hlaupastígum út úr borginni en þegar í Mosfellsbæ sé komið verði hlaupið eftir þjóðveginum.

Fannar vonar innilega að veðrið verði gott á leiðinni. „Ég hef þó vissar áhyggjur af ferðinni yfir Holtavörðuheiði. Við verðum þar seint að kvöldi eða jafnvel um miðja nótt og það gæti orðið mjög kalt þar. Það er þó það eina sem ég er hræddur við.“

Hann á svo von á því að einhverjir frá Blönduósi sláist í för á lokakílómetrunum og hlaupi með hópnum, enda stundi tiltekinn hópur metabolic-æfingar, rétt eins og Spartverjar. Metabolic er hópþjálfun þar sem notast er við teygjur, kraftbolta, ketilbjöllur, kaðla, TRX bönd, eigin líkamsþyngd og fleira. Hugsunin er sú að iðkendur geti stýrt ákefðinni sjálfir.

Yrði ánægður með að safna milljón

Meðan á hlaupinu stendur mun hópurinn safna áheitum til styrktar langveikum börnum. Allt sem safnast mun renna óskipt til þessa málefnis.

„Ég yrði rosalega glaður ef okkur tækist að safna milljón,“ svarar Fannar þegar hann er spurður út í markmið með söfnuninni.

Hægt verður að fylgjast með hlaupahópnum á samfélagsmiðlunum Facebook, Twitter og Instagram. Fannar segir að unnið sé að því að setja upp beina útsendingu í gegnum GPS þannig að fylgjast megi með framgöngu hópsins á korti. „Við verðum mjög dugleg á samfélagsmiðlunum við að dæla út myndum og myndböndum. Einhverjir hlauparar verða með GoPro vél á sér þannig að við ættum að geta tekið upp megnið af leiðinni,“ segir hann.

Hægt er að styrkja málstaðinn með því að leggja inn á eftirfarandi reiking: 0307-13-11019 á kennitölu 680510-1720.

Fannar Karvel Steindórsson.
Fannar Karvel Steindórsson. mbl.is/Styrmir Kári
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert