Ágúst ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga

Ágúst Bjarni Garðarsson.
Ágúst Bjarni Garðarsson.

Ágúst Bjarni Garðarsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og hefur hann störf í dag.

Ágúst hefur starfað sem stundakennari, verkefnisstjóri og nú síðast á skrifstofu utanríkisráðherra.

Ágúst lýkur meistaraprófi í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík í næsta mánuði. Hann er í sambúð með Áslaugu Maríu Jóhannsdóttur sálfræðinema og saman eiga þau dreng, að því er segir í tilkynningu sem birt er á vef atvinnuvegaráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert