Enginn vann 2.434.636.440 krónur

Enginn hlaut hinar 2.434.636.440 krónur sem í boði voru fyrir allar tölur réttar í Eurojackpot í kvöld en tveir hlutu þó rúmar 86 milljónir í 2. vinning. Voru það heppnir miðaeigendur í Finnlandi og Þýskalandi. Einn heppinn vinningshafi á Ítalíu náði svo í 3. vinning, tæpa 61 milljón króna. 

Enginn var heldur með allar réttar í Jóker kvöldsins en einn heppinn miðaeigandi í áskrift var með fjórar réttar og fær 100.000 krónur í sinn hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert