Margt breyst á þremur áratugum

20 starfsmenn voru verðlaunaðir fyrir tryggð við félagið.
20 starfsmenn voru verðlaunaðir fyrir tryggð við félagið. Ljósmynd/Olís

20 starfsmenn Olís voru í dag heiðraðir fyrir góð störf og tryggð við félagið um árabil. Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, afhenti starfsmönnunum viðurkenningarnar í sérstökum hátíðarkvöldverði á veitingastaðnum Nauthól.

Í tilkynningu frá Olís segir að árlega séu veittar viðurkenningar þeim starfsmönnum sem hafa starfað hjá fyrirtækinu í 10, 15,29,25 eða 30 ár. Þá eru starfsmenn sæmdir brons-, silfur- eða gullmerki félagsins sem þakklæti fyrir langan starfsaldur.

 „Það hefur verið ákaflega gott að starfa hjá Olís annars væri ég nú örugglega ekki hér eftir 30 ár. Fyrirtækið hefur gert vel við sína starfsmenn og það er líklega þess vegna sem svo margir hafa átt langan starfsferil hér. Ég hef unnið með mörgum sem hafa verið hjá fyrirtækinu í hálfa öld,” segir Kristinn Leifsson, sem fékk viðurkenningu fyrir 30 ára starf hjá Olís samkvæmt tilkynningu.  Hann er vélstjóramenntaður og hefur starfað við sölu- og tæknilega ráðgjöf á smurolíu og eldsneyti hjá Olís í þrjá áratugi.

 „Það hefur auðvitað margt breyst á þremur áratugum. Fyrst var maður í skífusíma og telex í samskiptum við viðskiptavini og birgja. Þegar faxið kom þá varð töluverð bylting. Nú er aðgengi að upplýsingum auðvitað margfalt betra með tilkomu netsins og allri þeirri tölvu- og upplýsingatækni sem er í boði. Það eru búnar að vera talsverðar breytingar á tækni í vinnslu á eldsneyti og vélum bifreiða og þá sérstaklega í seinni tíð. Því hefur verið þörf á að kynna sér marga nýja hluti á þessum 30 árum. Olís hóf m.a. að blanda alla sína dísilolíu með VLO, eða vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu, fyrir tveimur árum,” segir Kristinn ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert