Enn haldið sofandi

Landspítali háskólasjúkrahús
Landspítali háskólasjúkrahús mbl.is/Ómar

Kínversku konunni sem slasaðist alvarlega í bílveltu við Hellissand í fyrradag er enn haldið sofandi í öndunarvél samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Mun lítil breyting hafa orðið á ástandi hennar.

Sex ferðamenn voru í bílnum sem valt. Slösuðust tveir alvarlega og var flogið með þá til Reykjavíkur í þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hinn ferðamaðurinn sem slasaðist, kínverskur karlmaður á fertugsaldri, lést í gær.

Frétt­ir mbl.is:

Tveir al­var­lega slasaðir

Þungt hald­in eft­ir á gjör­gæslu

Lést eftir umferðarslys

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert