Utanvegaakstur í hlíðum Hverfjalls

Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Landverðir við eftirlit í Mývatnssveit komu að ljótum utanvegaakstri í hlíðum Hverfjalls eða Hverfells síðastliðinn fimmtudag. Athæfið verður ekki skrifað á holótta vegi. 

Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.

Á vettvangi hafði bíl verið ekið tæpa hundrað metra út fyrir veg og upp í hlíðar gígsins sem er einstakt náttúrufyrirbæri á heimsvísu. Bílnum hafði verið ekið upp þar til hann spólaði sig fastan vegna bratta.

„Eins og gefur að skilja eru ummerki svona aksturs í lausu undirlagi mikil. Mjög mikilvægt er að afmá þau eins skjótt og kostur er til að lágmarka líkurnar á að aðrir fari að fordæmi þessa ökumanns. Þau sem hafa kunna að hafa upplýsingar um athæfið eru beðin um að hafa samband við Umhverfisstofnun. Utanvegaakstur er viðvarandi vandamál á Íslandi þrátt fyrir að akstur utan vega sé ólöglegur,“ segir í frétt Umhverfisstofnunar.

Hverfjall eða Hverfell er eitt af kennileitum Mývatnssveitar og er friðlýst náttúruvætti.

Landverðir við eftirlit í Mývatnssveit komu að ljótum utanvegaakstri í hlíðum Hverfjalls eða Hverfells síðastliðinn...

Posted by Friðlýst svæði í Mývatnssveit - Umhverfisstofnun on Friday, May 29, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert