Sækja örmagna ferðamann

mbl.is/Ómar

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar af Suður- og Norðurlandi hafa verið ræstar út til að sækja örmagna ferðamann í Þjófadali vestan við Hveravelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Óskað var eftir aðstoð vegna mannsins eldsnemma í morgun. Þar sem færð og aðstæður á hálendinu eru með erfiðara móti var ákveðið að sækja að staðnum frá tveimur áttum. Björgunarsveitir eru komnar áleiðis en reikna má með að tíma taki að komast á staðinn og flytja manninn til byggða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert