Actavis viðhaldi öflugri starfsemi í Hafnarfirði

Actavis í Hafnarfirði.
Actavis í Hafnarfirði.

Bæjarráð Hafnarfjarðar fundaði í morgun með fulltrúum frá Actavis þar sem farið var yfir þær breytingar sem framundan eru hjá fyrirtækinu. Bæjarráð skorar á stjórnendur Actavis að leita allra leiða til að viðhalda öflugri starfsemi í Hafnarfirði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. 

Þar segir, að starfsemi Actavis sé snar þáttur í fjölbreyttu atvinnu lífi Hafnarfjarðar og fyrirhugaður samdráttur rekstrarins sé því áfall.

„Bæjarráð skorar á stjórnendur Actavis að leita allra leiða til að viðhalda öflugri starfsemi í Hafnarfirði og að allir möguleikar verði skoðaðir á því að ný verkefni komi í stað þeirra sem ákveðið hefur verið að flytja úr landi.

Jafnframt var  bæjarstjóra  falið að óska eftir fundi með atvinnuveganefnd Alþingis vegna framtíðarþróunar atvinnumála í Hafnarfirði,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert