„Það er mjög líflegt hér í bænum og gaman,“ segir Ómar Garðarsson, fréttaritari í Vestmannaeyjum, þar sem Goslokahátíð fer fram nú um helgina. Er endalokum eldgossins í Heimaey þar fagnað, en í ár eru 42 ár síðan gosinu lauk.
Ómar segir veður með besta móti á svæðinu, 20 stiga hita, logn og blíðu. Þá sé mikill fjöldi fólks á svæðinu. „Það er mikið að aðkomufólki hér um helgina. Brottfluttir fjölmenna hingað, svo þetta er eins og stórt ættarmót,“ segir hann og bætir við að auk þess sé mikið af ferðamönnum.
Hátíðarhöld hófust á fimmtudag og standa fram á sunnudag með fjölbreyttri dagskrá. Má þar nefna Sirkus Íslands sem verður með sýningar á malarvellinum, KK-Band sem kemur fram á balli í Höllinni ásamt Eyþóri Gunnarssyni og Bjartmari og bergrisunum, sjö tinda göngu frá Stórhöfða og göngumessu frá Landakirkju að gíg Eldfells og að Stafakirkju.
Að sögn Ómars er mikil stemning í bænum og segir hann hátíðarhöld í gær hafa staðið yfir fram á morgun. „Það var tekið á því fram undir morgun og þeir allra hressustu voru að til klukkan fimm í morgun,“ segir hann og hlær.
Hefð er fyrir því að veitingastaðir í bænum bjóði upp á sérstakan goslokamatseðil og margir þeirra eru einnig með lifandi tónlist. Þá hafa verið opnaðar myndlistarsýningar verða víðs vegar um bæinn og er ýmiss konar afþreying er í boði fyrir alla aldurshópa. Þá er árlega golfmótið Volcano Open einnig haldið um helgina.
Dagskrána í heild má sjá hér.