Róttæki sumarháskólinn og Attac á Íslandi efndu í dag til samstöðufundar með Grikkjum í „baráttu þeirra gegn ofbeldi Evrópusambandsins og fjármálakapítalismans“. Var fundardagurinn valinn sökum þess að í dag ganga Grikkir til sögulegrar atkvæðagreiðslu um hvort ganga eigi að skilmálum lánardrottna ríkisins.
Á Facebook-síðu viðburðarins kemur fram að slagorð fundarins séu: „Nei við ofríki - Já við lýðræði. Nei við skuldaánauð - Já við jöfnuði. Nei við niðurskurði - Já við velferð.“ Er fólk þar hvatt til að sýna stuðning við Grikki „og önnur fórnarlömb skuldaofbeldis fjármálastofnana“.
Ríkisstjórn Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur hvatt þjóðina ítrekað til að hafna skilmálunum í tilraun til að styrkja stöðu sína gagnvart erlendum lánardrottnum.
Í skoðanakönnum í gær mátti vart á milli sjá hvort yrði ofan á. Þó að enn sé mjótt á munum þykir nú öllu líklegra að „nei“ hafi sigurinn.