Atlantsolía og Orkan hafa lækkað verð á bensínlítranum um 2 krónur og dísillítranum um 3 kr. Bensínlítrinn er nú 42 kr. ódýrari en er hann var dýrastur í fyrrasumar, segir Hugi Hreiðarsson, hjá Atlantsolíu.
Bensínlítrinn hjá Atlantsolíu kostar nú 223,60 kr. Hjá Orkunni kostar hann 223,50. Verð á dísillítranum er nú 208,20 kr. hjá Orkunni og 208,30 hjá Atlantsolíu.
Frétt mbl.is: Hressileg olíuverðslækkun
Hér má fylgjast með bensínverði á landinu.