Ségolène Royal hitti Gunnar Braga

Ségolène Royal, ráðherra umhverfismála, sjálfbærrar þróunar og orkumála Frakklands, átti í dag fund með Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra. Royal er hér á landi í boði utanríkisráðherra og iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Ráðherrarnir áttu fund í Hellisheiðarvirkjun þar sem frú Royal kynnti sér nýtingu jarðhita og var afar áhugasöm. Ráðherrarnir lögðu áherslu á að endurnýjanlegir orkugjafar gegndu lykilhlutverki við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í þágu í loftslagsmála.

Ráðherrarnir voru sammála um að miklir möguleikar væru fyrir hendi varðandi nýtingu jarðhita í heiminum og lýstu vilja til samstarfs milli íslenska og franska jarðhitaklasans. Mikilvægt væri að vekja athygli á nýtingu jarðhita á heimsvísu og lýstu ráðherrarnir í því samhengi ánægju sinni með það frumkvæði sem Ísland og Frakkland í samstarfi við IRENA, stofnun um endurnýjanlega orkugjafa, hefðu sýnt með stofnun samstöðuhóps stuðningsríkja jarðhitans – Global Geothermal Alliancesem kynnt verður formlega á ríkjaráðstefnu Loftslagssamnings SÞ í Frakklandi í desember n.k.

Utanríkisráðherra undirstrikaði að Ísland hefði metnað til að leggja sitt af mörkum á vettvangi loftslagsmála og hefði Ísland í því sambandi nýlega tilkynnt um markmið við gerð nýs loftslagssamnings SÞ, með ESB og Noregi um 40% minnkun losunar til 2030.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert