Innbrot og búðarhnupl

mbl.is/Sigurgeir

Síðdegis í gær voru tvær ungar stúlkur staðnar að þjófnaði á snyrtivöru og sælgæti fyrir rúmar tuttugu þúsund krónur í verslunarmiðstöð. Lögreglan lét foreldra vita en stúlkurnar, sem eru yngri en átján ára, voru látnar lausar að lokinni skýrslutöku.

Jafnframt var tilkynnt um innbrot í heimahús í miðborginni. Raftæki og fleira tekið. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki en málið er í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Um þrjú leytið í nótt var maður handtekinn grunaður um húsbrot. Vistaður í fangageymslu þar til unnt verður að ræða við hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert