Slátturinn loksins hafinn

Ari Rúnar Gunnarsson við sláttinn á bænum Vogum II.
Ari Rúnar Gunnarsson við sláttinn á bænum Vogum II. mbl.is/Birkir Fanndal

Bændur í Mývatnssveit eru loks byrjaðir að heyja eftir langvarandi norðanátt og vætu.

„Menn eru að byrja einn af öðrum. Loks er kominn þurrkur svo þetta er gerlegt,“ segir Gunnar Rúnar Pétursson í Vogum í Morgunblaðinu í dag.

Hann segir að flestir hafi verið búnir í heyskap um svipað leyti í fyrra. Nú horfi menn til veðurs og vonist eftir góðri spá svo að hægt sé að halda heyskap áfram.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert