Slökkviliðið á Akureyri var kallað út rétt fyrir klukkan tólf í dag vegna elds í ferðavagni á tjaldsvæðinu við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit. Í fyrstu var óttast að eldurinn næði að berast í bifreið og nærliggjandi ferðavagn en snör viðbrögð viðstaddra komu í veg fyrir það.
Þrír voru inni í vagninum þegar eldurinn kom upp og voru það gestir á tjaldsvæðinu sem björguðu fólkinu út. Þegar slökkvilið kom á vettvang slökkti það eld sem enn var logandi en lítið var eftir af ferðavagninum. Fólkið var flutt á bráðamóttöku með brunasár.
Töluvert hefur verið að gera hjá slökkviliðinu á Akureyri í sjúkraflutningum og sjúkraflugi um helgina. Frá því á fimmtudag til og með laugardegi hefur liðið sinnt 35 sjúkraflutningum á landi og flogið með átján sjúklinga í sextán sjúkraflugsferðum.