Þung umferð í bæinn

Fólk streymir heim eftir skemmtilega helgi.
Fólk streymir heim eftir skemmtilega helgi. mbl.is/Ernir

Umferð til höfuðborgarinnar er farin að þyngjast, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi. Allt hefur þó gengið áfallalaust fyrir sig.

Lögreglan segir umferðina í meira lagi og fólk streymi í bæinn. Þetta gangi allt hægt en örugglega og fólk verði að vera þolinmótt.

Ekkert óhapp hefur komið inn á borð lögreglu í Borgarnesi. Búist er við því að umferð þyngist enn frekar þegar líða tekur á kvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert