Fastir í miðri Austdalsá

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Ómar

Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út fyrir stundu vegna bíls sem var fastur út í miðri Austdalsá en í bílnum voru tveir farþegar auk bílstjóra. Mikið vatn er í ánni og var því sveitin kölluð út á F1 sem er hæsti forgangur.

Björgunarmenn brugðust skjótt við, fóru á staðinn, hafa náð öllum úr bílnum og eru þeir nú á leið með sjúkrabíl á sjúkrahús til skoðunar. Beðið er eftir stærri bíl til að skoða hvort hægt er að ná bílnum úr ánni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert