Bensín, banani og 13 milljónir

Hún var á leið norður í land fyrir tveimur vikum og var að nálgast Borgarnes þegar hún tók eftir að bíllinn var að verða bensínlaus. N1 varð fyrir valinu en auk þess að kaupa bensínið keypti hún banana fyrir barnið sitt og einn 10 raða Lottómiða. Í hádeginu daginn eftir heyrði fjölskyldan að vinningur upp á rúmlega 13 milljónir hefði komið á miða, sem var einmitt keyptur í N1 í Borgarnesi.

Það var mikill spenningur sem myndaðist við eldhúsborðið meðan farið var yfir miðann og ennþá meiri gleði sem braust út þegar ljóst hvers kyns var.  Því að hversu ljúft er það að vera ekki einu sinni orðin þrítug og eiga von á lottóvinningi inn á reikninginn sinn upp á þrettán milljónir?

Unga konan sagði að hugurinn sé búinn að vera á flugi en hún sé samt ákveðin í að stofna varasjóð – en samt að leyfa sér eitthvað smá, segir í fréttatilkynningu frá Íslenskri getspá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert