Vill halda áfram sem varaformaður

Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hanna Birna Kristjánsdóttir, þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að hún ætlaði sér að sækjast eftir áframhaldandi setu í stóli varaformanns Sjálfstæðisflokksins.

Hún sagði að vissulega væri staða hennar  í stjórnmálum breytt, en sagðist hafa átt góðri lukku að stýra í kosningum innan Sjálfstæðisflokksins. Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, sagði í sömu frétt Stöðvar 2 að hann hefði átt gott samstarf við Hönnu Birnu í störfum fyrir flokkinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert