Orkuafhending skert vegna lítils innrennslis

Innrennsli hefur verið meira í lónin á suðurhluta landsins en …
Innrennsli hefur verið meira í lónin á suðurhluta landsins en í Hálslón á Austurlandi. Enn vantar töluvert á að lónin fyllist. mbl.is/Helgi Bjarnason

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórkaupendum að draga þurfi úr afhendingu á raforku frá næstu mánaðamótum ef ástand vatnsbúskaparins batnar ekki þeim mun meira.

Innrennsli í miðlunarlón, ekki síst á Austurlandi, er minna en það hefur verið í meira en áratug vegna lítillar snjó- og jökulbráðnunar í sumar, að því er fram  kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nú vantar 30% upp á að miðlunarlón Landsvirkjunar séu full. Útlit er fyrir að enn muni vanta 20% upp á fyllingu um næstu mánaðamót þegar öll lón eiga að vera full og byrjað að nota vatnið til raforkuframleiðslu. Landsvirkjun reiknar með að draga úr orkusölu um 3,5% á komandi vetri. Það getur þó breyst eftir ástandi vatnsbúskaparins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert