Fleiri Bandaríkjamenn en færri Danir

Horft yfir brottfararsalinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík.
Horft yfir brottfararsalinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Ljósmynd/Sigurgeir Sigurðsson

Um 123 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í september síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Það eru 35 þúsund fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 39,4% milli ára og hefur hún ekki mælst svo há milli ára í september frá því Ferðamálastofa hóf talningar. Fjöldinn frá áramótum er nú kominn yfir eina milljón.

Í tilkynningu frá Ferðamálastofu kemur fram að aukning hafi verið alla mánuði ársins á milli ára. Aukningin var 34,5% í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í mars, 20,9% í apríl, 36,4% í maí, 24,2% í júní, 25,0% í júlí og 23,4% í ágúst.

Bandaríkjamönnum fjölgaði en Dönum fækkaði

Um 71% ferðamanna í síðasta mánuði voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 22,7% af heildarfjölda og næstfjölmennastir voru Þjóðverjar (10,3%) og Bretar (10,3%). Þar á eftir fylgdu síðan Kanadamenn (5,5%), Norðmenn (4,5%), Frakkar (4,1%), Danir (4,0%), Svíar (3,7%), Kínverjar (3,5%) og Spánverjar (2,8%).

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Þjóðverjum, Kanadamönnum og og Kínverjum mest milli ára í september en 12.643 fleiri Bandaríkjamenn komu í september í ár en í fyrra, 3.294 fleiri Bretar, 2.734 fleiri Þjóðverjar, 2.347 fleiri Kanadamenn og 2.342 fleiri Kínverjar. Þessar fimm þjóðir báru uppi 67,2% aukningu ferðamanna í september. Dönum, Norðmönnum og Rússum fækkaði hins vegar í september í ár frá því í fyrra.

Veruleg aukning í september

Ferðamálastofa hóf talningar á ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli árið 2002 og hefur ferðamönnum í september fjölgað verulega síðan þá. Heildarfjöldi ferðamanna í septembermánuði hefur meira en fimmfaldast frá árinu 2002 og munar þá mestu um aukningu N-Ameríkana sem hafa nærri áttfaldast og þeirra sem flokkast undir ,,annað“ sem hafa tífaldast. Ferðamenn frá Mið- og Suður-Evrópu og Bretlandi hafa nærri þrefaldast og Norðurlandabúar ríflega tvöfaldast.

Aukningin mest frá Norður-Ameríku

Það sem af er ári hafa 1.010.186 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 222.087 fleiri en á sama tíma í fyrra. Um er að ræða 28,2% aukningu milli ára. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum nema Norðurlöndunum sem hafa staðið í stað. Aukningin hefur verið 50,1% frá N-Ameríku, 28,7% frá Bretlandi, 20,2% frá Mið- og S-Evrópu og 38,5% frá öðrum löndum sem ekki eru talin sérstaklega og flokkast undir ,,annað“.

Tæplega 44 þúsund Íslendingar fóru utan í september síðastliðnum eða um sex þúsund fleiri en í september árið 2014. Frá áramótum hafa 336.934 Íslendingar farið utan eða 38.246 fleiri en á sama tímabili árið 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert