Munu rukka 900 krónur í sund

Við Laugardalslaug
Við Laugardalslaug Styrmir Kári

Frá og með 1. nóvember mun kosta 900 krónur fyrir fullorðna í sund í Reykjavík. Borgarráð samþykkti hækkunina í dag en Dagur B. Eggertsson lagði fram tillöguna. Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Í tillögu borgarstjóra kemur fram að hækkunin sé liður í fyrstu skrefum í aðgerðaáætlun borgarráðs. Verð fjölmiðakorta og afslættir haldast óbreytt.

Um töluverða hækkun er að ræða en í dag kostar 650 krónur fyrir fullorðna í sundlaugar Reykjavíkurborgar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert