Verr hefði getað farið en raun varð þegar flugvél tók af stað úr stæði á Keflavíkurflugvelli með þeim afleiðingum að gámur sem stóð nærri henni tókst á loft og hafnaði á dráttartæki.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Atvikið átti sér stað í gærdag þegar ýta átti flugvélinni út úr stæði áður en hreyflar hennar yrðu ræstir. Þess í stað fór vélin af stað undir eigin afli og var henni beygt til hægri með þeim afleiðingum að hreyflar hennar feyktu gáminum á vinnutækið.
Gámurinn hafði staðið milli umræddrar vélar og fraktvélar áður en hann tókst á loft. Má leiða líkur að því að hefði vinnutækið ekki verið staðsett milli vélanna hefði gámurinn hafnað á síðarnefndu vélinni.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.