Akureyri vann nágranna sína úr Dalvíkurbyggð í Útsvarsþætti kvöldsins, en lokatölur urðu 68-41. Úrslit voru ljós fyrir síðustu spurningar, en Dalvík svaraði sinni síðustu spurningu vitlaust. Akureyri fékk aftur á móti tónlistarspurningu þar sem spurt var um Kristínu Eysteinsdóttur, núverandi leikstjóra Borgarleikhússins. Þrátt fyrir að liðsmenn töldu sig vera að skjóta út í loftið með þá spurningu fengu þau rétt fyrir hana og tóku síðustu 15 stigin í hús og unnu örugglega.