Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Khamshajiny (Khamzy) Gunaratnam, varaborgarstjóri Óslóar munu fara saman í Norðmannalund í Heiðmörk í dag til að skoða framtíðarjólatré fyrir Reykvíkinga.
Borgirnar hafa í sameiningu ákveðið að hætta sendingum jólatrjáa frá Noregi til Íslands enda samræmist það ekki umhverfissjónarmiðum, segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Í staðinn munu Óslóarbúar gefa Reykvíkingum íslenskt tré úr Heiðmörk. Fulltrúi Óslóar mun áfram verða viðstaddur þegar ljósin verða kveikt á trénu á Austurvelli og lögð verður sérstök áhersla á samskipti borganna tveggja vegna jólahaldsins.
Á heimleiðinni munu Dagur og Khamzy koma við í minningarlundi um fórnarlömb hryðjuverkaárásarinnar í Útey við Norræna húsið.
Kveikt verður á Óslóartrénu á Austurvelli í dag og hefst dagskrá því tengd kl. 15:30.