Dettifossvegur er ófær

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Hálka og skafrenningur er á Sandskeiði, Hellisheiði og Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og hálka eða snjóþekja á öðrum vegum á Suðurlandi.

Vestanlands er hálka eða snjóþekja á vegum en flughálka og skafrenningur á Útnesvegi. Vegurinn yfir Fróðárheiði er lokaður.

Hálka eða snjóþekja er á sunnanverðum Vestfjörðum en þæfingsfærð er á Klettshálsi og á milli Króksfjarðarness og Reykhóla ásamt miklum skafrenning. Á norðanverðum fjörðunum snjóþekja eða hálka.

Á vegi 60 eru umferð vísað um vetrarveg við Bæjardalsá og Geiradalsá. Hálka eða snjóþekja er á vegum á Norðurlandi en ófært á Dettifossvegi. Austanlands er víðast hvar hálka og snjóþekja eða hálka með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert