Frost og él í kortunum

Veðurspá fyrir landið næsta sólarhringinn gerir ráð fyrir vaxandi norðaustanátt, 8-15 metrum á sekúndu, síðdegis en 13-18 m/s norðvestantil og suðaustanlands.

Búist er við éljum fyrir norðan og austan en þurru á Suðvesturlandi. Frostlaust verður með suðurströndinni en annars vægt frost.

Á morgun verður áfram ákveðin norðanátt með éljum norðan- og austanlands og herðir á frostinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert