„Óábyrgt að fara frá borði“

Birgitta Jónsdóttir
Birgitta Jónsdóttir mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við höfum alltaf haft það þannig hjá Pírötum að það er í lagi skipta um skoðun. Í jólafríinu langaði mig ekki að halda áfram og sonur minn langþráir að ég hafi meiri tíma fyrir hann. Hins vegar höfum við ekki marga reynslubolta í Pírötum sem vita hvernig stjórnmál virka,“ sagði Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, í viðtali í sjónvarpsþættinum Eyjunni, aðspurð út í ákvörðun hennar að bjóða sig aftur fram fyrir flokkinn eftir að hafa lýst því yfir að hún muni ekki gera það.

„Stjórnmál eru yfirleitt mun ljótari en menn halda, þetta er mikil valdabarátta á milli flokka, og á milli þeirra sem vilja stjórna flokkunum. Ég steig fram þegar flokkurinn komst upp í 20% og lagði til ákveðna vegferð. Fylgið hefur haldið áfram að aukast og mér finnst pínulítið óábyrgt að fara frá borði þá. Ef við leggjum til stutt kjörtímabil þá finnst mér ekki mikill munur á að sitja á þingi í átta eða tíu ár,“ bætti Birgitta við.

Um fyrri ummæli sín um að hún ætli að hætta á þingi sagði hún: „Þetta var ekkert í umræðunni fyrir síðustu kosningarnar sem eitthvert kosningaloforð.“

Björn Ingi Hrafnsson, þáttastjórnandi, vísaði þá í ummæli Jóns Þórs Ólafssonar, fyrrum þingmanns flokksins, um að hvorki hann né þau Birgitta og Helgi Hrafn ætluðu að bjóða sig fram aftur.

Við því sagði Birgitta: „Ég hef prófað það að vera í litlum þingflokki og það er flókið. En það er mikilvægt að halda utan um stóran flokk og hjálpa fólki að komast inn í þetta. Þeir í hinum flokkunum eru ekki mikið fyrir að kenna manni hlutina.“ 

„Þetta er ekki eins og að koma á nýjan vinnustað, heldur er maður strax kominn í valdabaráttu. Það er kannski rangt hjá mér, en mér finnst svolítið óábyrgt að leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að fólk verði svikið eftir kosningar. Við viljum að það sé þannig að það sé ákveðið fyrirfram hvernig stjórnarsáttmálinn verður og jafnvel vil ég sjá fjárlögin líka liggja fyrir.“

Ekki kosningabandalag en bindandi samkomulag

Aðspurð hvort Birgitta sjái fyrir sér kosningabandalag með öðrum flokkum segir hún:

„Ég sé ekki fyrir mér kosningabandalag heldur bindandi samkomulag með þeim sem vilja fara í vegferð með okkur. Við leggjum ekki upp með að fella ríkisstjórnina. Þeir sem eru nú við völd eru að sjá um það sjálfir.“

„Ef fólk vill ekki vinna að þessu með okkur, þá þætti mér óráð að fara að gera það sem allir flokkar gera alltaf. Þá myndum við frekar vilja vera í minnihluta eða vera í minnihlutastjórn,“ sagði Birgitta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert