Vélsleði brann utan við Sauðárkrók

Sauðárkrókur
Sauðárkrókur mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Eldur kviknaði í vélsleða við Sauðárkróksbraut um hádegið í dag, skammt frá bænum. Tveir voru á sleðanum en þá sakaði ekki.

Eldurinn kviknaði í vélarhúsi sleðans, sem er sagður af eldri gerð. Ekki fékkst ráðið við eldinn áður en sleðinn brann til kaldra kola en slökkvistarf gekk að öðru leyti vel. Lögregla hefur málið á sinni könnu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert