Flugvél hlekktist á í lendingu á Hólmavíkurflugvelli í dag klukkan hálf fjögur. Samkvæmt upplýsingum mbl.is voru tveir menn í vélinni, en þeir eru báðir ómeiddir. Vélin endaði á hvolfi á flugbrautinni þegar hún var komin langleiðina með að stoppa, en atvik liggja enn ekki ljós fyrir.
Þorkell Ágústsson, rannsóknarstjóri flugslysasviðs hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa staðfesti við mbl.is að hann væri á leiðinni á staðinn til að skoða vélina og vettvang.
Vélin er tveggja sæta Cessna 152.