Íslenskt meðallíf

Sunnudagsblað Morgunblaðsins fer yfir hvernig meðallífið á Íslandi gæti ca …
Sunnudagsblað Morgunblaðsins fer yfir hvernig meðallífið á Íslandi gæti ca litið út. macrovector

Hvernig væri líf okkar ef við leituðumst við að fylgja einhvers konar meðallífsstíl sem þekktur er úr rannsóknum og könnunum? Út frá ýmsum meðaltalsupplýsingum og könnunum er hægt að slumpa á ákveðna forskrift að því hvernig er hægt að vera meðaleinstaklingur með meðalfjölskyldu í meðallífi á Íslandi. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kemur út um helgina er farið yfir hvernig það líf gæti litið út.

Sá sem ætlar að fylgja því út í æsar að tilheyra meirihlutanum býr í eigin húsnæði með manneskju af gagnstæðu kyni, í sambúð eða hjónabandi, og á með henni tvö börn.

Þegar fyrra barnið kom í heiminn var móðirin 27 ára gömul, eins og meðalfrumbyrjan á Íslandi er, en faðirinn þremur árum eldri eins og meðaltalið gerir ráð fyrir að sé aldursmunur milli para. Það var árið 2009 sem fyrra barnið kom í heiminn, árið sem flest börn fæddust á Íslandi. Gefum okkur að þrjú ár séu á milli barnanna, og seinna barnið hafi fæðst árið 2012.

Þegar fjölskyldan vaknar þennan dag, 14. febrúar árið 2016, eru þau sem ala önn fyrir fjölskyldunni því hinn 37 ára gamli Jón og hin 33 ára gamla Anna en vinsældaguðirnir gáfu þeim þessi vinsælustu nöfn áranna sem þau fæddust. Dóttir þeirra, sem er sjö ára, ber tvö nöfn eins og meirihluti barna á þeim tíma og heitir vinsælasta tvínefni ársins 2009; Anna María. Sonurinn fjögurra ára heitir einnig einu algengasta tvínefni ársins 2012; Gunnar Þór.

En hvernig læturðu daginn líða til að komast nálægt því að vera meðalmanneskja í meðallífi?

Ef þú vaknar ekki endurnærður í dag verður þú að reyna að ná góðum svefni á morgun eða hinn. Hver Íslendingur vaknar nokkrum sinnum í viku úthvíldur. Það eru tvær vikur síðan var skipt á rúmfötum og þú þarft því að skella þeim í vélina áður en farið er til vinnu því þjóðin skiptir á rúmfötum að meðaltali á tveggja vikna fresti.

Morgunmaturinn   er hollur, eins og á hverjum einasta degi. Þú verður að hafa bæði grænmeti og ávexti á matseðlinum, það er daglegt mynstur Íslendingsins

Það er föstudagur og fjölskyldan þyrfti að fylla á ísskápinn. Föstudagur er algengasti verslunardagur vikunnar hér á landi í matvörubúðum. Ef þú vilt breyta örlítið út frá meðaltalinu dugar næstalgengasti dagurinn, fimmtudagur.

Þú þarft ekki að gefa gæludýrinu að éta þar sem þú tilheyrir meirihlutanum. Um 60% landsmanna eiga ekki gæludýr. Ef þú vilt endilega fá þér einhvern félaga á heimilið hafðu það þá hund, alls ekki naggrís, það eru bara 2% landsmanna sem eiga naggrís. 20% eiga hund.

Það er um að gera að fara nokkuð sáttur út í daginn. Það gerir mikill meirihluti þjóðarinnar. Í það minnsta eru nágrannarnir henni ekki til ama og hún er ánægð í vinnunni. Fjölskyldur sem eru farnar að plana sumarfríið sitt hlakka til enda hafa sumarfríin verið vel heppnuð síðustu árin.

Ef þú hefur ekki ennþá gefist upp á að vera meðal-Íslendingurinn skaltu halda áfram og passa að í innkeyrslunni sé mest selda bifreið síðustu ára; Toyota. Annaðhvort Corolla eða Yaris en það er sniðugt að bæta við sig einni bifreið fljótlega ef þú átt bara eina – til að komast í meðaltalið; tvær bifreiðir.

Á leiðinni í vinnuna er ekki lengur verið að fikta í útvarpstækinu. Þeim mun heldur ertu að lesa sms eða skrifa þau og senda. Sunnudagsblaðið mælir að sjálfsögðu ekki með slíkri hegðun en þarf að vera heiðarlegt; þriðji hver bíll á ljósunum fiktar við slíkt. Og veit samt að það er hættulegt. En gott og vel, bara þriðji hver – þú sleppur við það og getur hagað þér vel. Passaðu þig bara á hinum.

En ef þetta var einn af þeim morgnum sem svefninn var ekki góður skaltu hins vegar miklu frekar láta fara í taugarnar á sér að næsti maður skuli ekki gefa stefnuljós. Það er það sem fer í taugarnar á íslenskum ökumönnum samkvæmt rannsóknum.

Fáðu þér hús í úthverfi, það eru fjölmennustu hverfi borgarinnar svo einhvers konar meðallífi er hægt að ná með slíkum ráðahag. Að því gefnu að fjölskyldan sé svo komin í úthverfið eiga börnin að ganga í skólann eins og meirihluti annarra úthverfabarna borgarinnar. Ef þið búið ennþá í Vesturbæ Reykjavíkur eða miðbænum er allt í góðu að keyra barnið í skólann en 50% barna í þeim hverfum er skutlað í skólann.

Talandi um Vesturbæinn. Leyfðu þér að dagdreyma um að búa þar. Flestir íbúar Reykjavíkur, samkvæmt könnun á búsetuóskum, vilja búa í Vesturbænum, miðbænum eða nærliggjandi hverfum. Íbúðin sem þú býrð í núna er einhvers staðar á milli 90-120 fermetrar  og draumastærðin er nákvæmlega 120 fermetrar.

Náðu þér strax í kaffi í vinnunni. Í dag þarftu að drekka tvo og hálfan bolla af kaffi. Konur drekka þó aðeins minna, svo ef þú ákveður að vera Anna fremur en Jón á þessum meðallífsdegi hafðu bollana þá tæplega tvo.

Starf þitt tengist tölvum á einn eða annan hátt. Nokkrir vinnufélagar eyða 10% vinnutímans í einkaerindum í tölvunni en þú ert ekki einn af þeim enda eru þeir bara 16%. Þú ert samt á Facebook og notar miðilinn oft á dag eins og næstum allir Íslendingar. Þú ert ekki kominn með Snapchat þar sem ekki hefur náðst samkomulag á Íslandi um að meirihlutinn noti slíkt og alls ekki Twitter þar sem bara 16% vina þinna og kunningja eru þar.

Upplýsingar eru m.a. fengnar úr opinberum gögnum, svo sem frá Hagstofu
Íslands og Samgöngustofu, könnunum Gallup og MMR, Landlæknisembættinu, umhverfisskýrslu höfuðborgarsvæðisins, rannsóknum á vegum Háskóla Íslands, Modernus og gögnum frá Efnahags- og framfarastofnun Evrópu.

Forsíða Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins.
Forsíða Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins.
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert