Reyndu að stela hreindýraskinni

Bláa lónið.
Bláa lónið. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um þjófnað úr verslun Bláa lónsins síðdegis í fyrradag. Þar voru á ferðinni tveir erlendir ferðamenn sem voru að skoða vörur og reyndu svo að hnupla hreindýraskinni. Verð á því er um 25.000 krónur.

Skinnið var óskemmt þegar starfsfólk verslunarinnar fékk það aftur í hendur og var lögregla beðin um að vísa mönnunum út af svæðinu, sem hún og gerði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert