Sláttur hafinn í Reykjavík

Sláttur.
Sláttur. mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Sláttur í Reykjavík hófst í byrjun vikunnar og er það nokkrum dögum fyrr en á síðasta ári enda sprettan meiri nú en þá. Þetta er haft eftir Birni Ingvarssyni, deildarstjóra þjónustumiðstöðvar borgarlandsins, í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Það eru starfsmenn verktaka sem sinna slætti meðfram þjóðvegum í þéttbýli, svo sem við Hringbraut og Miklubraut, Breiðholtsbraut og Gullinbrú.  Hluti sumarstarfsfólks er nú þegar kominn til vinnu en fleiri koma til starfa í næstu viku og þá hefst sláttur fyrir alvöru, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Svæðin meðfram þjóðvegunum eru um 118 hektarar, sem áætlað er að slegnir verði fjórum sinnum yfir sumarið. Almenningsgarðar, svo sem Laugardalur, Hljómskálagarður, Klambratún, Grundargerði, Austurberg og Seljatjörn eru um 22 hektarar og verða slegnir allt að vikulega.

Önnur svæði, svo sem opin svæði í íbúðahverfum og lóðir grunn- og leikskóla eru um 334 hektarar sem áætlað er að slá um þrisvar sinnum, en það fer þó eftir sprettu hverju sinni og á hverjum stað. Í heildina eru það því um 474 hektarar sem grassláttur tekur til.

Í sumar á að skoða breytingar á litlum hluta, mögulega 10 – 20 hekturum af þeim 474 sem slegnir eru í dag, með því breyta þeim í náttúrulegri svæði, sem er oft gert með því að planta trjágróðri og/eða öðrum gróðri. Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri segir að með slíkum breytingum sé stoðum rennt undir líffræðilega fjölbreytni, sem geri svæðin sjálfbærari og skapi búsvæði fyrir fugla og aðrar lífverur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert