Tilkynnt var um heimilisofbeldi í austurborg Reykjavíkur um hálftólfleytið í gærkvöldi og var kona vistuð í fangageymslu lögreglunnar.
Klukkustund síðar var tilkynnt um heimilisofbeldi í vesturborginni. Þar var kona einnig vistuð í fangageymslu, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.