Tveir ökumenn bifhjóla handteknir

Hringbraut í Reykjavík.
Hringbraut í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur ökumönnum bifhjóla við Hringbraut í gærkvöldi. Annar þeirra hafði verið sviptur ökuréttindum ævilangt en hinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hjól hans var með röng skráningarmerki og var einnig ótryggt.

Um þrjúleytið í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn við Túngötu. Hann er grunaður um skemmdir á bifreið og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu.

Um hálftíuleytið í gærkvöldi voru afskipti höfð af manni í Hellisgerði í Hafnarfirði vegna vörslu fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert