Nítján stiga hiti á Austurlandi

Hiti verður á bilinu 10 til 19 stig í dag, …
Hiti verður á bilinu 10 til 19 stig í dag, hlýjast austanlands. mbl.is/Styrmir Kári

Spáð er suðlægri átt í dag, 8 til 13 metrum á sekúndu norðvestan til fram að hádegi en annars 3 til 8 metrum á sekúndu. Víða verður súld eða dálítil rigning sunnan- og vestanlands en annars skýjað með köflum, samkvæmt Veðurstofu Íslands. 

Á morgun verður skýjað við suður- og vesturströndina en annars léttskýjað. Hiti verður á bilinu 10 til 19 stig í dag, hlýjast á Austurlandi.

Veðurfréttavefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert