Vann 181 milljón króna

AFP

Heppinn þátttakandi í EuroJackpot-lottóinu er ríflega 181 milljón króna ríkari eftir útdráttinn í kvöld. Um er að ræða annan vinninginn í lottóinu en fyrsti vinningurinn gekk ekki út. Sá hljóðaði upp á rúmlega 4,7 milljarða króna. Vinningsmiðinn var keyptur í Þýskalandi.

Þriðji vinningurinn gekk einnig út en honum skipta þrír með sér. Fær hver um sig rúmlega 21 milljón króna í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi en einn í Finnlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert