Bílvelta á Strandarheiði

Allri vinnu er lokið á vettvangi.
Allri vinnu er lokið á vettvangi. mbl.is/Hjörtur

Bílvelta varð á Strandarheiði mitt á milli Keflavíkur og Reykjavíkur klukkan 17:30 í dag. Þrír voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en meiðsl þeirra eru ekki talin alvarleg. Allri vinnu er lokið á vettvangi.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu fóru sjúkrabílar bæði frá höfuðborgarsvæði og frá Brunavörnum Suðurnesja á svæðið þar sem slysið var á miðju vegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert