Fjögurra ára drengur lést í bruna

Drengur fæddur 2012 lést í bruna þegar eldur kom upp í húsbíl sem stóð við íbúðarhús á Stokkseyri í dag. Tilkynning barst um eldinn um kl. 15 en þegar lögregla og slökkvilið komu á staðinn var bifreiðin alelda.

Að því er fram kemur í tilkynningu á vef lögreglunnar var drengurinn að leik í bílnum og lést í brunanum.

Lögreglan á Suðurlandi ásamt tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn slyssins. Ekki verða gefnar nánari upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert