Góð netaveiði á grálúðu í sumar

Troll hefur ekki reynst gott veiðarfæri á grálúðuna í ár.
Troll hefur ekki reynst gott veiðarfæri á grálúðuna í ár. ?

Vel gengur að veiða grálúðu í net um þessar mundir. Netabáturinn Erling KE-140 hefur verið á grálúðuveiðum fyrir norðan Kolbeinsey í sumar og hafa þær veiðar gengið afar vel.

„Grálúðan hefur verið nokkuð erfið viðureignar í ár. Það hefur ekki gengið vel að veiða hana í troll en það hefur gengið ágætlega að veiða hana í net,“ segir Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja.

Erling KE hefur landað rúmlega 270 tonnum af grálúðu á Dalvík í júlímánuði og er væntanlegur til hafnar á sunnudagsmorgun og því gæti heildarafli í júlí farið yfir 300 tonn ef vel gengur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert