Nokkuð tjón í eldsvoða

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Eldur kom upp í vélaverkstæði við Austurveg á Selfossi aðfaranótt mánudags. Slökkvistarf gekk greiðlega en nokkurt tjón er af reyk og sóti á verkstæðinu. Eldsupptök reyndust vera í dráttarvél sem þar í viðgerð, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Suðurlandi.

Þá kom eldur upp í bíl á Höfn þann 18. ágúst. Viðstaddir náðu að slökkva hann með handslökkvitæki. Töluvert tjón er á bílnum en líkur eru á að kviknað hafi í út frá rafbúnaði bílsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert