Reykjanesbraut lokað í norðurátt

Lokað hefur verið fyrir umferð vegna umferðaróhapps.
Lokað hefur verið fyrir umferð vegna umferðaróhapps. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reykjanesbraut í norður, á móts við Vallahverfi í Hafnarfirði, hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps. Umferð er beint um Strandgötu. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglu.

Uppfært 17:32

Bíll valt á Reykjanesbraut til móts við Vallahverfið. Einn maður var í bílnum og þurfti slökkviliðið að beita klippum til að ná honum út úr bílnum.

Maðurinn hefur verið fluttur á sjúkrahús til rannsókna og frekari aðhlynningar, en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl hans eru.

Uppfært 17:55

Búið er að opna Reykjanesbrautina fyrir umferð á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert