Skólamáltíðir draga úr brottfalli og fjarvistum

Skólastúlkur í Mangochi-héraði í Malaví. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki …
Skólastúlkur í Mangochi-héraði í Malaví. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Ljósmynd/ Rauði krossinn

Verkefni sem alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands í Malaví hefur tekið þátt í um að bjóða upp á máltíðir í skólum hefur dregið verulega úr brottfalli og fjarvistum nemenda. Það nær til tæplega þriðjungs allra barna í landinu og hefur máltíðunum fjölgað um 41% milli ára vegna betri mætingar nemenda.

Íslendingar hafa í tæplega fjögur ár stutt verkefni á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFPI) í Malaví um heimaræktaðar skólamáltíðir. Þær eru hluti af stóru verkefni WPF sem er langstærsti veitandi skólamáltíða í landinu sem ná til rúmlega 900 þúsunda skólabarna, eða 30% allra barna í landinu, að því er kemur fram í Heimsljósi, vefriti utanríkisráðuneytisins um þróunarmál.

Af rúmlega 90 þúsund nemendum sem fá skólamáltíðir í Malaví á vegum WFP eru um 1.500 börn í þremur skólum í Mangochi sem fá heimaræktaðan mat í skólanum sem greiddur er af íslensku skattfé gegnum ICEIDA.

Í nýrri skýrslu WFPI er fjallað um samstarfið við ICEIDA sem hófst í nóvember 2012. Í skýrslunni kemur fram að þessi aðferð að bjóða skólabörnum upp á máltíðir úr heimabyggð hafi hafist með samstarfi WFP og ICEIDA í Mangochi í umræddum þremur skólum með samstarfssamningi til fimm ára.

Eftir góðan árangur af verkefninu fyrsta árið hafi WFP tekist að bæta við sjö nýjum grunnskólum, tveimur í Mangochi og fimm í Phaombe, með styrk frá samtökunum Purchase from Africans for Africa (PAA). Ári síðar ákváðu norsk stjórnvöld að setja umtalsvert fé í verkefnið og þá fjölgaði skólunum upp í 79. Alls eru núna 89 skólar í fjórum héruðum sem bjóða nemendum heimaræktaðar máltíðir, að því er fram kemur í skýrslunni.

„Verkefnið hefur ekki aðeins haft jákvæð áhrif á skólagöngu, nám og næringu barnanna heldur hefur það jafnframt víðtæk áhrif í samfélaginu því samvinnufélög bænda sjá um útvegun máltíðanna og ganga að kaupanda vísum að afurðum með tilheyrandi efnahagslegum framförum. Þannig hafi heimaræktuðu skólamáltíðirnar margföldunaráhrif á þróun í samfélaginu,“ segir í frétt Heimsljóss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert